Hvernig virkar ferlið?
Innritun
Þegar þú skráir þig í þjálfun færðu aðgang að appinu mínu. Þegar þú skráir þig inn í appið í fyrsta skipti birtist spurningarlisti sem þú þarft að fylla út áður en áfram er haldið. Spurningarnar þar eru hannaðar þannig að þær gefi mér sem bestu mynd af þinni stöðu, þínum markmiðum, þinni getu og hvernig matar- og æfingaplanið þitt ætti að líta út.
Þetta er stuttur og einfaldur spurningarlisti ásamt myndum.
Þegar ég hef fengið þessar upplýsingar hefst ég handa við að hanna þitt prógramm.
Onboarding
- Ég fer yfir matarplanið, tilganginn með hverri máltíð og minni hugsun varðandi uppsetningunni á næringunni.
- Ég fer yfir æfingarplanið, nefni ef það eru æfingar sem þurfa sérstaka athugun og hver fókusinn á planinu er og hvernig hann tengist þínum markmiðum.
- Ég fer yfir aðra hluti eins og brennslu, skref, fæðubótarefni, vatnsinntöku og aðra hluti sem tengjast þinni þjálfun.
- Ég fer yfir hvers ég ætlast til af þér, hvað þú þarft að gera til að ná árangri í þjálfuninni, hvaða gögnum þú þarft að skila mér og hvernig það virkar.
- Ég fer yfir allt sem þú þarft að vita svo þú getir byrjað að fylgja prógramminu og náð árangri strax. Þar sem þú skilur hvaða tilgang það sem þú ert að gera þjónar.
Þú hefst handa
Þegar þú hefur lokið 7 dögum þá er komið að check-in!
Vikuleg Stöðumöt (Check-In)
Check-Ins er svarað með vídeói þar sem ég fer yfir gögnin með þér. Ég skoða hvort eitthvað var ábótavant, hvaða vandamál gætu verið að hægja á þér og hjálpa þér að leysa þau. Ég hrósa þér og hvet þig áfram þegar ég sé að þú ert að gera góða hluti.
Fyrir mér hafa check-in ákveðið hringrásarkerfi af peppi. Þegar ég sé að þú stendur þig peppast ég upp. Þegar ég er peppaður í check-in að segja þér hvað þú ert frábær þá peppast þú upp. Við peppum hvort annað í gegnum allt ferlið, sem gerir þetta ótrúlega skemmtilegt og lætur mann vilja ná lengra!
Ef það eru hlutir sem þarf að laga mun ég nefna þá. Mér finnst mikilvægt að tala um hlutina hreint svo að þú getir vaxið og náð lengra. Ég trúi ekki á þjálfun sem snýst bara um klapp á bakið sama hvernig vikan fór.
Við erum í þessu samstarfi til að vaxa, til að bæta okkur og byggja aga Það er gert með því að viðurkenna mistökin okkar og bæta úr þeim næst.
Það er enginn fullkominn og allir eiga slæmar vikur. Það er allt partur af ferlinu. Þegar þú átt slæma viku skoðum við hvað gerðist og hvernig hefði verið hægt að tækla það betur.
