SKILMÁLAR
Almennt
Það er okkar markmið að viðskipti þín við Prime Fitness séu ánægjuleg. Til að stuðla að því mælum við með því að þú kynnir þér skilmála Prime Fitness . Það mun fyrirbyggja allan misskilning og stuðla að góðum samskiptum í framtíðinni.
Þjónusta Prime Fitness
Prime Fitness veitir þjónustu á sviði upplýsinga og aðgangs að vefsvæði fyrir einstaklinga. Um er að ræða aðgang að hugbúnaði sem heldur utan um æfingarplön, matardagbækur, samskipti við þjálfara, fræðsluefni og persónuupplýsingar notenda. Þjónustu þessari er ætlað að veita notendum aðhald og aðstoða þá við að ná bættum árangri og betri heilsu.
Réttur til að hætta við pantanir
Prime Fitness áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Prime Fitness áskilur sér rétt til að segja upp áskrift án endurgreiðslu ef samband milli kúnna og þjálfara er ekki að ganga.
Notendur
Með hugtakinu „notendur“ í hvaða falli sem er, fleirtölu eða eintölu, er átt við þá sem nýtir sér þjónustu Prime Fitness . Allir þeir sem nýta sér þjónustu Prime Fitness verða að lesa skilmála þessa og samþykkja við skráningu á vefsvæði. Notendur fá aðgang að innri vef Prime Fitness og bera þeir ábyrgð á að tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna, þ.e. notendanafns og lykilorðs. Notendum er óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með öðrum aðilum eða veita öðrum aðgang að innri vef Prime Fitness . Prime Fitness ber enga ábyrgð á hvers kyns tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að hljótast af því að aðrir aðilar komist yfir aðgangsupplýsingar notenda. Verði notandi þess var að óviðkomandi aðili hefur komist yfir aðgangsupplýsingar hans að innra vef Prime Fitness , þá skal hann samstundis láta Prime Fitness vita. Notandi ber fulla ábyrgð á því að upplýsa Prime Fitness um heilsukvilla, ofnæmi og annað sem skipt getur máli við nýtingu á þjónstunni. Notendur sem fá aðgang að þjónustu Prime Fitness bera fulla ábyrgð á að greiða áskrift að fullu þó svo að nýting hafi ekki verið á þjónustu enda er það alfarið á notenda að notfæra sér þjónustu hjá sínum þjálfara.
Verð og áskrift
Verð fyrir þjónustu Prime Fitness er í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni og má finna verð hverjar þjónustu fyrir sig hjá Ísak Smára, eiganda Prime Fitness. Prime Fitness þjálfarar áskilja sér rétt til að breyta verðum . Þegar þú hefur samþykkt skilmála og skráð þig í þjálfun þá er kominn á samningur milli Prime Fitness og notanda. Samningar eru með binditíma sem hafa verið gefnir upp t.d. stakur mánuður, 3 mánuðir +, eða 6 mánuðir + og framlengjast þeir ekki sjálfkrafa að binditíma loknum nema þjálfari hafi sagt annað. Notendum er þó ávallt frjálst að óska eftir framlengingu. Greiði notandi ekki innan 15 daga frá gjalddaga þá lokast á aðgang hans að innri vef Prime Fitness . Það er á ábyrgð notanda að réttar greiðsluupplýsingar séu gefnar við skráningu. Ef aðili hefur valið kortaleið og kort nást ekki að verða rukkuð sem hafa verið gerðir samningar um fer þetta í innheimtu ferli hjá Inkasso og fer úr höndum Prime Fitness ef aðilar lenda í innheimtu þá bera þeir ábyrgð á að ræða við Inkasso um frekari upplýsingar.
Uppsögn samnings
Þegar skilmálar hafa verið samþykktir er kominn á samningur um kaup á þjónustu Prime Fitness þá er ekki hægt að segja upp þjálfun/þjónustu. Á móti framlengist binditími ekki sjálfkrafa nema þjálfari hafi gefið aðila upp annað. Fari notandi ekki eftir skilmálum þessum þá áskilur Prime Fitness sér rétt til að segja samningi um þjónustu upp án nokkurs fyrirvara eða endurgreiðslna.
Prime Fitness ber ekki ábyrgð á:
Meiðslum, slysum, veikindum, mistökum eða öðru sem kann að leiða til skaðabótaskyldu eða refsiskyldu. Notandi nýtir þjónustu Prime Fitness á eigin ábyrgð.
Óþægindum eða tjóni, beinu eða óbeinu, vegna bilana í tölvu- eða hugbúnaðarkerfum.
Tjóni eða óþægindum sem kunna að hljótast af því hvers konar misnotkun eða mistökum við meðferð upplýsinga sem fara á milli þjónustuveitanda og notanda. Hér getur t.d. átt við ef þriðji aðili brýst inn í tölvukerfi þjónustuveitanda Prime Fitness eða tölvukerfi Prime Fitness /notenda og stelur eða misnotar upplýsingar á annan hátt.
Tjóni eða óþægindum vegna annara atvika sem talin eru óviðráðanleg (e. force majeure).
Neinum upplýsingum eða gögnum sem notandi sendir til Prime Fitness í gegnum innri vefinn/appið. Prime Fitness skuldbindur sig til að vernda upplýsingar og gögn notenda eftir fremsta megni.
Persónuvernd
Hluti af því að nýta sér þjónustu Prime Fitness felst í því að veita okkur upplýsingar um þig. Þær upplýsingar sem þú veitir kunna að vera persónuupplýsingar og viðkvæmar persónuupplýsingar. Ástæðan fyrir því af hverju þú veitir okkur þessar upplýsingar er einföld, með því getum við veitt þér mun betri þjónustu. Það er alltaf undir þig komið hversu miklar upplýsingar þú kýst að veita okkur.
Prime Fitness heitir fullum trúnaði um þær upplýsingar sem þú veitir okkur. Við munum gæta þinna upplýsinga eftir bestu getu. Um meðferð persónuupplýsinga við viðskiptin fer samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Þær upplýsingar sem við kunnum að safna um þig og óska eftir að þú veitir okkur eru:
Nafn, heimilsfang og aðrar tengiliðaupplýsingar.
Kennitala.
Samskipti þín við okkur.
Æfingaplön sem þú færð aðgang og önnur sambærileg gögn.
Mælingar.
Myndir.
Persónulegar upplýsingar um þig og þitt nánasta umhverfi, vinnu fjölskyldu og fleira.
Heilsufarsupplýsingar.
Við munum hvorki safna né vinna persónulegar upplýsingar um þig í öðrum tilgangi en þeim að veita þér góða þjónustu. Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki þitt fyrir veitingu persónuupplýsinga og eftir atvikum fengið þeim eytt.
Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er þjónusta
Kaupandi sem kaupir þjónustu eða stakt námskeið (eða aðra vöru) greiðir fyrirfram. Ef um netþjálfun er að ræða er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.
Endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt námskeiðsgjald, enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þáttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.
Breytingar
Prime Fitness áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálum þessum og þjónustu án fyrirvara.
Ágreiningur
Rísi ágreiningur um viðskiptin sem verður ekki leystur með öðrum hætti en aðkomu dómstóla skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar
Ef þú þarft nánari upplýsingar eða vilt koma að ábendingum eða kvörtunum, sendu okkur þá fyrirspurn á isaksmarig@gmail.com og við svörum þér eins fljótt og auðið er.
Gildistími
Skilmálar þessir gilda frá 12. Ágúst 2025.