Sérsniðin Plön

Dæmi um æfingu í Prime Fitness appinu

Æfingaplan

Hver og einn fær sérsniðið æfingaplan hannað eftir reynslu, getu, tækjavali sem viðkomandi hefur aðgengi að og markmiðum.

Það skiptir gríðarlega miklu máli að hafa æfingaplan sem hentar þér sérstaklega. Það þarf að vera hannað þannig að það komi þér nær þínum markmiðum á raunhæfan máta.

Ef þú ert að kljást við meiðsli þá þurfa æfingarnar að vera í takt við það. Það er mikilvægt að geta æft þrátt fyrir meiðsli og það þarf að finna hvernig hægt er að æfa í kringum það. 

Ef þú ert með líkamsparta sem þarf að fókusa sérstaklega á þá þarf prógrammið að geta sett fókus á það án þess að það hafi neikvæð áhrif á endurheimt.

Æfingaplan getur breyst oft en einnig getur það verið eins í langan tíma. Það fer allt eftir hverjum og einum, hvernig ferlið gengur, hvort eitthvað komi upp á leiðinni og hvort æfingarnar séu skemmtilegar. Því það á að vera GAMAN í ræktinni!

Ég hef hannað hundruði æfingaprógramma og þó ég segi sjálfur frá er ég orðinn ansi flinkur að gera þau skemmtileg, skilvirk og fjölbreytt þannig að þau henti hverjum og einum.

Matarplan

Þegar þú skráir þig í Prime Fitness skoða ég hvaða mat þú værir til að hafa í matarplani, hvað þér finnst gott og hvað þú vilt alls ekki hafa. 

Lykilatriði að góðu matarplani er að þér finnist maturinn GÓÐUR!
Ég get hannað prógramm sem fullkomið á blaði en ef þér finnst það óspennandi þá mun það falla saman áður en fyrsta vikan klárast. Það þarf ENGINN að borða vondan mat þó hann sé í þjálfun. 

Fyrir suma virkar einfaldleikinn best, fyrir aðra er þörf á valkostum. 
Ég kem til móts við alla með sérþarfir þegar kemur að matarplani en passa samt að það sé þannig sett upp að það skili árangri.
Leit